Ólöf Dröfn Eggertsdóttir

Ólöf Dröfn er sálmeðferðafræðingur (e. psychotherapist) og lærð sem leiðbeinandi í Simplicity Parenting.

Hún sinnir meðferð fullorðinna, sérhæfir sig í meðhöndlun á einstaklingum sem vinna í heilbrigðisþjónustu eins og læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og sálfræðingum. Vandamál sem hún sinnir eru lágt sjálfsmat, kvíði, streita, kulnun/örmögnun, sorg, áfallastreita, samskiptavandog almenn tilfinningaleg vanlíðan. Ólöf Dröfn sinnir einnig innflytjendum sem eiga erfitt með að aðlagast og pörum sem vilja vinna að meiri nánd í sambandinu sínu.

Sérhæfing og áhugasvið
Ólöf Dröfn hefur sérhæft sig í einstaklingsmiðaðri meðferð (e.
Person Centered Therapy) en lærði margar tegundir meðferða m.a.  samkenndarmeðferð (Compassion Focused Therapy, CFT), HAM (hugræna
atferlismeðferð) og hugræna úrvinnslu meðferð (Cognitive Processing Therapy, CPT), frásagnarmeðferð (e. Narrative Therapy) og sómatíska meðferð (e. Somatic Therapy). Jafnframt hefur hún góða reynslu af notkun og kennslu núvitundar (Mindfulness), og dáleiðslu í meðferð. Val á meðferðum miðast við þarfir skjólstæðings.

Ólöf Dröfn hefur reynslu af hópmeðferð, bæði fyir börn og fullorðna og foreldra fræðslu fyrir foreldra sem eiga börn með ADHD og á rófinu.

Menntun og starfsreynsla

2011 lauk Ólöf Dröfn Masters of Science gráðu við Northeastern State University sem Sálmeðferðafræðingur (e. Counseling Psychology).
2009 BA gráða í sálfræði við Northeastern State University með viðskiptafræði sem aukagrein.

Frá útskrift hefur hún starfað við greiningu og gerð meðferðaráætlana á geðdeild, hópmeðferðir og markþjálfun. Einnig sinnir Ólöf reglulega endur- og símenntun og er nú að læra tilfinningamiðaða parameðferð (emotion-focused couples therapy / Hold me tight).